
Harvard University, Bachelor of Arts (B.A.), Psychology, 2018 (Cum Laude) Dean's List Academic Achievement Award 2018. Háskólinn í Reykjavík, MSc í klínískri sálfræði 2022. Rannsóknarverkefni: The Efficacy of Group Cognitive Behavioral Therapy (CBT) for Adults with a History of Childhood Abuse: A Single-Case Experimental Study. Vigdís M.
Harvard University, Bachelor of Arts (B.A.), Psychology, 2018 (Cum Laude) Dean's List Academic Achievement Award 2018. Háskólinn í Reykjavík, MSc í klínískri sálfræði 2022. Rannsóknarverkefni: The Efficacy of Group Cognitive Behavioral Therapy (CBT) for Adults with a History of Childhood Abuse: A Single-Case Experimental Study. Vigdís M. Jónsdóttir er sálfræðingur með starfsleyfi frá Landlæknisembættinu og vinnur samkvæmt siðareglum sálfræðinga sem má nálgast hér.

2025
2024
2025
2024
2023
2021
2020
2019
2017
2017

Ég heiti Vigdís M. Jónsdóttir og er sálfræðingur með meistaragráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Ég hef starfað með fjölbreyttum hópi einstaklinga – bæði innan opinbera geirans og í sjálfstæðum rekstri. Mín sérþekking liggur í meðferð við kvíða, þunglyndi, lágu sjálfsmati og taugafjölbreytileika. Í mínu starfi vinn ég ú
Ég heiti Vigdís M. Jónsdóttir og er sálfræðingur með meistaragráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Ég hef starfað með fjölbreyttum hópi einstaklinga – bæði innan opinbera geirans og í sjálfstæðum rekstri. Mín sérþekking liggur í meðferð við kvíða, þunglyndi, lágu sjálfsmati og taugafjölbreytileika. Í mínu starfi vinn ég út frá markmiðum og þörfum hvers og eins. Meðferðin byggir á gagnreyndum aðferðum, þar á meðal hugrænni atferlismeðferð (HAM), Acceptance and Commitment Therapy (ACT) og díalektískri atferlismeðferð (DAM). Á síðustu árum hef ég aukið áherslu mína á lífeðlisfræðilega þætti sem tengjast geðheilsu, og er að sérhæfa mig frekar í nálgun sem á ensku heitir metabolic psychiatry. Sú nálgun skoðar hvernig líkamlegir þættir eins og næring, svefn, hreyfing og efnaskipti hafa áhrif á andlega líðan – sérstaklega hjá fólki með langvinn einkenni sem hafa ekki náð árangri með hefðbundinni meðferð. Meðal annars hef ég tekið þátt í alþjóðlegu námskeiði sem ber heitið The Ketogenic Diets for Mental Health Clinician Training Program (2025) undir leiðsögn Dr. Georgia Ede, þar sem lögð var áhersla á notkun ketógen næringar sem stuðningsaðgerð í meðferð geðheilbrigðisvandamála. Í dag býð ég upp á samtalsmeðferð þar sem hægt er að nálgast vanda bæði út frá sálfræðilegum og líkamlegum þáttum – þegar það á við. Markmiðið er alltaf það sama: að styðja þig í að ná meiri lífsgæðum og jafnvægi í daglegu lífi, með því að nýta mína þekkingu í klínískri sálfræði.
Vigdís M. Jónsdóttir M.Sc., sálfræðingur
📧 vigdis@deartherapist.org
📸 @deartherapist_kaerisali
📍 Reykjavík (með fjarviðtöl í boði)
© 2025 Dear Therapist – Öll réttindi áskilin.